Aston Villa fékk hörmulegar fréttir í dag en ljóst er að tveir leikmenn munu ekki leika meira á þessu tímabili.
Um er að ræða tvo fastamenn í liðinu en markvörðurinn Tom Heaton og framherjinn Wesley eru báðir meiddir.
Þeir voru báðir bornir af velli í leik gegn Burnley á dögunum eftir að hafa skaddað liðband í hné.
Villa hefur staðfest að leikmennirnir spili ekki meira á tímabilinu sem er mikill skellur.
Félagið gæti því reynt að kaupa inn allavegana tvo leikmenn í janúarglugganum.