Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur staðfest það að félagið muni reyna að kaupa leikmenn í janúar.
Þetta staðfesti Arteta í gær en ljóst er að varnarmaðurinn Calum Chambers verður frá meiddur í 8-9 mánuði eftir að hafa slitið krossband.
Spánverjinn ætlar því að skoða hvað er í boði í janúar og mun Arsenal líklega styrkja hópinn.
,,Augljóslega þá varð Calum fyrir slæmum meiðslum og það breytir okkar hugmyndum í vörninni,“ sagði Arteta.
,,Við munum reyna að vera hluti af markaðnum og styrkja liðið. Það er skylda og við munum vinna í því.“