RB Leipzig í Þýskalandi hefur gefið sterklega í skyn að varnarmaðurinn Dayot Upemecano sé ekki á förum í janúar.
Upemecano er orðaður við Arsenal þessa dagana en hann ku kosta um 80 milljónir punda.
Varnarmaðurinn er aðeins 21 árs gamall en hann er einn mikilvægasti leikmaður Leipzig í dag.
Stuðningsmaður Arsenal setti inn færslu á Twitter í gær þar sem hann sagðist vera að bíða eftir tilkynningu félagsins um kaup á Upemecano.
Leipzig tók sig þá til og svaraði þessum stuðningsmanni og sagðist vera með slæmar fréttir.
Þetta má sjá hér.