Miðjumaðurinn Dejan Kulusevski hefur skrifað undir samning við Juventus á Ítalíu.
Þetta var staðfest í kvöld en Juventus kaupir leikmanninn frá Atalanta fyrir um 35 milljónir evra.
Kulusevski hefur spilað með Parma á láni á leiktíðinni og hefur staðið sig mjög vel. Hann mun klára tímabilið með félaginu.
Juventus tók eftir frammistöðu leikmannsins og gerir hann samning til ársins 2024.
Það gæti þýtt að Emre Can sé á förum frá Juventus í þessum glugga en hann fær ekki mikið að spila hjá félaginu.
Kulusevski er 19 ára gamall og er frá Svíþjóð.