Juventus á Ítalíu hefur staðfest brottför framherjans öfluga Mario Mandzukic eins og talað hefur verið um síðustu daga.
Mandzukic hefur verið orðaður við brotfför í margar vikur en hann hefur nú gert samning við lið Al-Duhail.
Mandzukic gerði tveggja ára samning við Al-Duhail sem spilar í efstu deildinni í Katar.
Króatinn er 33 ára gamall en hann lék með Juventus frá 2015 til 2019 og skoraði 30 deildarmörk í 117 leikjum.
Áður lék Mandzukic með Bayern Munchen og Atletico Madrid og á einnig að baki 88 landsleiki fyrir Króata.