Andres Iniesta, goðsögn Barcelona, hefur ákveðið að hafna tilboði David Beckham.
Beckham heyrði í Iniesta á dögunum og bauð honum að semja við Inter Miami sem er lið í eigu hans.
Inter Miami hefur keppni í bandarísku MLS deildinni á næsta ári og leitar nú að leikmönnum.
Iniesta afþakkaði boð Beckham og hefur ákveðið að klára samning sinn með Vissel Kobe í Japan.
Þar hefur Inesta spilað síðan hann yfirgaf Barcelona og verður samningslaus 2021.