Mark Liverpool átti að standa gegn Wolves um helgina en Sadio Mane skoraði eina markið í 1-0 sigri.
Þetta segir Dermot Gallagher, fyrrum dómari í úrvalsdeildinni, en mikið hefur verið talað um markið.
Rætt var um að boltinn hefði farið í hönd Virgil van Dijk áður en hann sendi boltann á Adam Lallana sem kom honum á Mane sem skoraði.
Gallagher segir hins vegar að markið hafi verið gott og gilt og treystir dómgreind dómarans Anthony Taylor.
,,Þeir dæmdu þetta rétt, þetta er frábært dæmi um VAR því Anthony Taylor segir að þetta sé ekki hendi og hann er með besta sjónarhornið,“ sagði Gallagher.