Það kom mörgum á óvart að Jamie Vardy spilaði ekki með Leicester City í gær gegn West Ham.
Vardy hefur verið besti leikmaður Leicester á tímabilinu og hefur einnig raðað inn mörkum.
Brendan Rodgers, stjóri Leicester, staðfesti það eftir leik að Vardy hafi verið á sjúkrahúsi ásamt eiginkonu sinni.
Þau voru stödd á fæðingardeildinni en Rebekah, eiginkona Vardy, eignaðist þá þeirra þriðja barn.
Vardy verður þó klár í næsta verkefni Leicester en liðið vann góðan 1-2 útisigur í gær.