Liverpool 1-0 Wolves
1-0 Sadio Mane(42′)
Liverpool vann dýrmætan sigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið fékk Wolves í heimsókn.
Aðeins eitt mark var skorað á Anfield en það gerði Sadio Mane fyrir heimamenn.
Wolves jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks en það var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu.
Wolves fékk einnig ákjósanleg færi í seinni hálfleiknum en inn vildi boltinn ekki og lokastaðan, 1-0.
Liverpool er nú með 13 stiga forskot á toppnum og á einnig leik til góða.