Borussia Dortmund hefur staðfest kaup sín á Erling Braut-Haaland frá Red Bull Salzburg. Hann var afar eftirsóttur.
Manchester United, Juventus og fleiri lið vildu fá þennan 19 ára gamla framherja.
Hann hefur raðað inn mörkum í Austurríki en kaus að fara til Dortmund, hann gat einnig farið til Red Bull Leipzig.
Miklar vangaveltur hafa verið í gangi um hvaða skref Haaland tæki en hann hefur kosið að fara til Þýskalands.
Haaland gerir samning til 2024 en þessi öflugi framherji er frá Noregi.