Carlo Ancelotti, nýr stjóri Everton, mun segja nei við Manchester United í janúarglugganum.
Frá þessu greina enskir miðlar en United hefur áhuga á Brasilíumanninnum öfluga Richarlison.
United er að íhuga tilboð í Richarlison en hann myndi kosta liðið allt að 70 milljónir punda.
Ancelotti hefur þó engan áhuga á að losna við sóknarmanninn og tekur ekki í mál að hleypa honum burt.
Ancelotti tók við Everton á dögunum af Marco Silva sem fékk einmitt Richarlison til félagsins frá Watford.