Brasilíumaðurinn Hulk er á forsíðum blaða í Suður-Ameríku eftir fréttir sem birtust um helgina.
Hulk er leikmaður sem margir kannast við en hann gerði garðinn frægan með Porto og Zenit.
Í dag spilar Hulk með Shanghai SIPG í Kína en hann er 33 ára gamall og fær vel borgað fyrir sín störf.
Hulk og eiginkona hans Iran skildu í júlí á þessu ári en þau voru saman í 12 ár og eiga þrjú börn saman.
Hulk er ekki vinsæll hjá fjölskyldu fyrrum konu sinnar í dag en hann er byrjaður að hitta frænku hennar.
Camila heitir þessi ágæta stúlka en hún eyddi jólunum með Hulk í Campina Grande í Brasilíu.
Camila hefur fengið verulegt áreiti eftir þessar fréttir og þurfti að eyða aðgangi sínum á samskiptamiðlum.