Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City, viðurkenndi stór mistök í gær eftir leik við Wolves sem tapaðist 3-2.
Mendy missti boltann klaufalega í jöfnunarmarki Wolves en City var 0-2 yfir manni undir í seinni hálfleik en sú forysta tapaðist.
,,Það er auðvelt að tala en þegar illa gengur þá er það erfitt,“ sagði Mendy.
,,Ég gerði stór mistök í kvöld og ég skulda ykkur mitt besta eftir endalausan stuðning.“
,,Við þurfum að halda haus og halda áfram að vinna í því að komast í okkar besta form.“