Paul Scholes, goðsögn Manchester United, hefur tjáð sig um miðjumanninn Paul Pogba.
Pogba var óvænt ekki í hóp í kvöld er United spilaði við Burnley – leikurinn er enn í gangi.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, sagði að það ‘væri ekki rétt’ að nota Pogba í leik kvöldsins.
,,Hann segir almenningi það sem hann þarf að segja. Við vitum ekkert,“ sagði Scholes.
,,Við getum ekki vitað hvort hann sé meiddur, hvort hann sé ekki á réttum stað andlega eða hvað.“
,,Við vitum það bara að ef hann er heill þá á hann að spila. Það gefur í skyn að hann gæti verið tæpur.“