Óskar Hrafn Þorvaldsson var í kvöld valinn þjálfari ársins af samtökum íþróttafréttamanna.
Þetta kom fram á verðlaunaafhendingu í Hörpunni í kvöld en Óskar viðurkenndi að valið hafi komið sér á óvart.
,,Ég var ekki búinn að undirbúa langa ræðu, ég hélt að Alfreð eða Patrekur myndu taka þetta,“ sagði Óskar.
,,Ég þakka konunni fyrir að hafa þolað mig, ég er erfiður maður og kasta mér í hluti. Ég hef verið með þetta Gróttu-verkefni á perunni í tvö ár samfleytt.“
Óskar náði frábærum árangri með Gróttu í knattspyrnu karla og kom liðinu upp í Pepsi-deildina í sumar.
Eftir frábæran tíma þar ákvað Óskar að taka að sér nýtt verkefni og var ráðinn þjálfari Breiðabliks.