Ofurmódelið, Viktoria Odintcova frá Rússlandi hafði ekki neinn áhuga á samskiptum við Cristiano Ronaldo, þegar hann sóttist eftir því.
Odintcova er heimsfræg og hefur um fimm milljónir fylgjenda á Instagram, hún ákvað að segja frá gömlum skilaboðum Ronaldo í sjónvarpsþætti í Rússlandi.
,,Hann hefur reynt að tala við mig, Ronaldo sendi mér skilaboð fyrir nokkrum árum. Hann skrifaði ‘Hæ, hvernig hefur þú það?’,“ sagði Odintcova.
,,Ég eyddi skilaboðunum og svaraði honum aldrei,“ sagði Odintcova og útskýrði svo af hverju.
,,Ég gaf honum ekki séns, ég vissi að hann væri að senda mörgum stelpum svona skilaboð. Ég vissi hvernig týpa hann væri, ég hafði ekki áhuga á svona.“