Tottenham þurfti að sætta sig við jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Norwich.
Það var boðið upp á hörkuleik á Carrow Road en honum lauk með 2-2 jafntefli þar sem Tottenham lenti tvisvar undir.
Harry Kane reyndist hetja gestanna seint í leiknum og tryggði stig úr vítaspyrnu.
Leicester City vann á sama tíma góðan 1-2 útisigur á West Ham og er möguleiki að það hafi verið síðasti leikur Manuel Pellegrini á Olynpic Stadium.
Jamie Vardy var ekki með Leicester í kvöld en Kelechi Iheanacho nýtti tækifærið og komst á blað ásamt Demarai Gray í sigrinum.
Leicester er nú fjórum stigum á undan Manchester City í öðru sæti deildarinnar en tíu stigum á eftir toppliði Liverpool.
Norwich 2-2 Tottenham
1-0 Mario Vrancic(18′)
1-1 Christian Eriksen(55′)
2-1 Serge Aurier(sjálfsmark, 61′)
2-2 Harry Kane(víti, 83′)
West Ham 1-2 Leicester
0-1 Kelechi Iheanacho(40′)
1-1 Pablo Fornals(45′)
1-2 Demarai Gray(56′)