Leonardo Jardim hefur verið rekinn sem stjóri Monaco í annað sinn en þetta var staðfest í kvöld.
Jardim var rekinn frá Monaco undir lok ársins 2018 en var svo ráðinn aftur eftir hörmulegt gengi undir Thierry Henry.
Nú hefur félagið ákveðið að reka Portúgalann aftur og mun Roberto Moreno taka við.
Moreno þjálfaði síðast spænska landsliðið tímabundið á meðan Luis Enrique var í leyfi.
Monaco er í sjöunda sæti frönsku úrvalsdeildarinnar en næsti leikur er gegn meisturunum í Paris Saint-Germain.