Erling Haaland, einn efnilegasti leikmaður heims, er búinn að ná samkomulagi við Juventus.
Frá þessu greina ítalskir miðlar en Haaland er einn allra eftirsóttasti bitinn í Evrópu þessa dagana.
Þessi 19 ára gamli leikmaður spilar með RB Salzburg í Austurríki og hefur raðað inn mörkum þar.
Manchester United hefur sýnt Haaland mikinn áhuga en samkvæmt nýjustu fregnum fer hann til Ítalíu.
Tuttosport er á meðal þeirra semsegja að munnlegt samkomulag sé í höfn á milli Juventus og leikmannsins.