Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, hefur gefið í skyn að hann vilji ganga í raðir Manchester United.
Grealish segir að Old Trafford sé hans uppáhalds völlur á Englandi en hann skoraði þar fyrr á tímabilinu.
Grealish er reglulega orðaður við stærri lið og gæti hann hugsað sér að spila fyrir stórliðið.
,,Það var uppáhalds markið mitt allra tíma, mig hefur alltaf langað að spila á Old Trafford,“ sagði Grealish.
,,Ég hef spilað þar áður með varaliðinu en það er ekki eins. Þetta er uppáhalds völlurinn minn í úrvalsdeildinni.“