Adama Traore, leikmaður Wolves, hefur gefið í skyn að liðið geti stefnt á að ná Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Traore var frábær í gær er Wolves vann 3-2 heimasigur á Manchester City en liðið er þó 22 stigum á eftir Liverpool í fimmta sæti deildarinnar.
,,Þetta lið er magnað. Við munum berjast alveg þar til í lokin, sama hver staðan er,“ sagði Traore.
,,Það er það sem við gerðum í dag og ég er svo ánægður fyrir hönd liðsins. Allir lögðu sig fram og trúðu að við gætum náð í þessi úrslit.“
,,Liverpool er frábært lið og er langt á undan á toppnum en við berjumst og reynum okkar besta.“