Síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið en leikið var á Turf Moor, heimavelli Burnley.
Jóhann Berg Guðmundsson byrjaði á bekknum hjá Burnley en kom inná sem varamaður á 68. mínútu.
Leikur kvöldsins var engin frábær skemmtun en það voru gestirnir sem höfðu betur, 0-2.
Hér má sjá einkunnir Sky Sports úr leiknum.
Burnley: Pope (6), Bardsley (6), Taylor (4), Tarkowski (5), Mee (5), Cork (5), Hendrick (5), Westwood (5), McNeil (6), Barnes (5), Woods (5)
Varamenn: Rodriguez (5), Gudmundsson (6)
———–
Man Utd: De Gea (7), Young (7), Lindelof (7), Maguire (7), Williams (8), Fred (8), Matic (7), Pereira (7), James (8), Martial (8), Rashford (7)
Varamenn: Lingard (6)