David Moyes, fyrrum stjóri Everton, gæti verið að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.
Frá þessu greinir the Telegraph en Moyes er sterklega orðaður við stjórastarfið hjá West Ham.
West Ham tapaði 2-1 gegn Crystal Palace á dögunum og er starf Manuel Pellegrini í milkilli hættu.
Stjórn félagsins íhugar að leita til Moyes sem starfaði fyrir félagið fyrir tveimur árum síðan.
Skotinn er opinn fyrir því að snúa aftur en hann hefur einnig þjálfað Manchester United og Sunderland.