Pep Guardiola, stjóri Manchester City, býst ekki við að kaupa mann fyrir David Silva næsta sumar.
Silva er 33 ára gamall en hann hefur staðfest að þetta sé hans síðasta tímabil með enska félaginu.
Guardiola veit að Silva verður sárt saknað en mun líklega ekki reyna að finna beinan arftaka í sumar.
,,Ég held að við munum ekki gera neitt við hans stöðu. Ég held að við munum ekki kaupa neinn,“ sagði Guardiola.
,,Kannski skipti ég um skoðun, það veltur á næstu sex mánuðunum. Það er annað í forgangi og ég held að ég kaupi ekki því ég er með nóg.“