Manchester United komst aftur á sigubraut þegar Newcastle heimsótti Old Trafford, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Matt Longstaff kom gestunum yfir snemma leiks áður en Anthony Martial jafnaði fyrir heimamenn. Mason Greenwood kom svo United í 2-1 skömmu síðar.
Marcus Rashford bætti við þriðja marki United áður en fyrri hálfleikur var á enda. Martial skoraði svo sitt annað mark í leiknum eftir hörmuleg mistök frá Sean Longstaff og þar við sat. United er nú fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti, liðið mætir Burnley eftir tvo daga en Newcastle tekur þá á móti Everton.
Scott McTominay meiddist í fyrri hálfleik, hann hefur verið einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins í ár. Hann harkaði af sér en fór af velli í hálfleik.
Hann sást svo eftir leik á hækjum en meiðsli McTominay eru í hné, og gætu verið alvarleg.
,,Ég veit ekki hversu slæmt þetta er, drengurinn er með stærsta hjartað af þeim öllum. Við finnum út úr þessu á morgun,“ sagði OLe Gunnar Solskjær.
Mynd af McTominay í kvöld má sjá hér að neðan.