Það er hátíð í dag fyrir þá sem hafa gaman af fótbolta en enski boltinn verður í fullu fjöri, níu leikir fara fram í úrvalsdeildinni.
Hátíðin byrjar með leik Tottenham og Brighton klukkan 12:30 en allir leikir dagsins verða í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans.
Chelsea spilar við Southampton klukkan 15:00 og klukkan 17:30 tekur Manchester United á móti Newcastle.
Dagurinn endar svo á stærsta leik dagsins þegar topplið Liverpool heimsækir Leicester sem situr í öðru sæti deildarinnar.
Tottenham Hotspur 12:30 Brighton & Hove Albion
Aston Villa 15:00 Norwich City
AFC Bournemouth 15:00 Arsenal
Chelsea 15:00 Southampton
Crystal Palace 15:00 West Ham United
Everton 15:00 Burnley
Sheffield United 15:00 Watford
Manchester United 17:30 Newcastle United
Leicester City 20:00 Liverpool