Guðmundur Benediktsson hefur slegið í gegn í nýjum þætti á Stöð2, Guðmundur er þekktastur fyrir að vera íþróttafréttamaður en þarna er um að ræða spjallþátt.
Þátturinn hefur notið vinsælda en á sunnudaginn síðasta í sérstökum jólaþætti, tók Guðmundur lagið. Óhætt er að segja að Guðmundur muni líklega aldrei ná langt, sem söngvari.
Guðmundur söng þar sígilt jólalag en tengdaforeldrar Guðmundar, höfðu gaman af. Sonur þeirra Albert Brynjar Ingason, framherji Kórdrengja, birti myndband af því þegar þau horfðu á flutning Guðmundar.
Ingi Björn Albertsson, tengdafaðir Guðmundar var öflugur knattspyrnukappi en hann grét úr hlátri fyrir söng kappans ásamt eiginkonu sinni.
,,Gömlu nýttu tímann á Aðfangardegi við að hlægja að flutningi hjá tengdarsyni sínum honum Gumma Ben við jólalagið Ég og Þú sem Gummi tók í síðasta þætti. Og plotta þau einnig að koma honum á óvart með að spila þetta í jólaboði sem var svo í kvöld, smelli því video inn á morgun,“ skrifar Albert við myndbandið.
Myndband af þessu má sjá hér að neðan.
Gömlu nýttu tímann á Aðfangardegi við að hlægja að flutningi hjá tengdarsyni sínum honum @GummiBen við jólalagið Ég og Þú sem Gummi tók í síðasta þætti.
Og plotta þau einnig að koma honum á óvart með að spila þetta í jólaboði sem var svo í kvöld, smelli því video inn á morgun pic.twitter.com/N8aapHSl5F
— Albert Ingason. (@Snjalli) December 25, 2019