Tottenahm er komið aftur á sigurbraut eftir að hafa fengið högg á kjaftinn gegn Chelsea í síðustu umferð, Brighton heimsótti glæsilegan heimavöll Tottenham í fyrsta leik dagsins á Englandi.
Það voru gestirnir sem voru yfir í hálfleik en það var Adam Webster sem skoraði markið á 37 mínútu leiksins.
Harry Kane lagaði stöðuna eftir 53 mínútur þegar hann jafnaði leikinn fyrir lærisveina Jose Mourinho.
Dele Alli sem hefur verið heitur undir stjórn Mourinho kom svo Tottenham yfir á 72 mínútu og þar við sat. Tottenham situr í fimmta sæti deildarinnar en Brighton í því þrettánda.