,,Ég er ánægður með margt af því sem ég sá í dag, ég sá líka mikið af hlutum sem við þurfum að æfa,“ sagði Mikel Arteta, nýr stjóri Arsenal eftir 1-1 jafntefli gegn Bournemouth í dag. Arteta var að stýra sínum fyrsta leik.
,,Ég er ekki ánægður með að vinna ekki leikinn.“
,,Þetta er hluti af vegferð okkar, að læra á liðið og hvernig við ætlum að gera hlutina. Ef ég horfi á viðhorf, vilja og hvað menn vildu þá var það meira, en ég gerði mér von um. Þeir eru ekki vanir að spila svona.“
,,Ég er að læra á leikmennina, ég þarf að fá sjálfstraust í liðið. Mitt markmið er að finna lausnir, sækja betur og verjast betur.“