Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United vonar að Paul Pogba geti byrjað gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Pogba kom öflugur inn eftir langa fjarveru, í tapinu gegn Watford. Frammistaða United hörmuleg og þarf liðið á Pogba að halda.
,,Sjáum hvernig honum líður eftir Watford leikinn, hann var öflugur þegar hann kom inn,“ sagði Solskjær.
,,Það er mjög gott fyrir okkur að fá hann til baka, við þurfum fleiri gæðaleikmenn í liðið.“
Pogba hafði ekki spilað síðan í september þegar hann snéri aftur, hann vill fara frá félaginu og gæti farið í janúar.
Pogba poised. “Let’s see how he reacts and how he feels [after the Watford game]," OGS said. “He did really well when he came on. It’s a big, big plus and it might be that we do get him in from the start because you just want to get more and more [quality] into the team." #MUFC
— Ben Dinnery (@BenDinnery) December 24, 2019