Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, hefur útilokað það að fá framherja til félagsins í janúar.
Real hefur ekki verið sannfærandi allt tímabilið en er þó aðeins tveimur stigum frá toppliði Barcelona.
Karim Benzema er helsta vopn Real í sókninni og hefur skorað 16 mörk í öllum keppnum.
Luka Jovic hefur þó ekki staðist væntingar eftir að hafa komið í sumar og er með eitt mark fyrir félagið.
Talað var um að Real gæti reynt að fá nýjan mann til að veita Benzema keppni en það gerist ekki.
,,Nei alls ekki. Ég sé enga ástæðu fyrir því að kaupa annan framherja,“ sagði Zidane.