Manuel Neuer, markvörður Bayern Munchen, útilokar ekki að reyna fyrir sér erlendis í nokkur ár.
Neuer er 33 ára gamall í dag en hann hefur lengi verið einn allra besti markvörður heims.
Hann er aðalmarkvörður þýska landsliðsins og gæti einn daginn reynt fyrir sér í nýrri deild.
,,Ég hef aldrei sagt það að ég muni enda ferilinn í Þýskalandi. Ég hef heldur aldrei sagst ætla að yfirgefa Bayern,“ sagði Neuer.
,,Eins og er þá get ég ekki séð mig spila erlendis en ég veit hvernig þessi starfsemi virkar og kannski mun það ná til mín.„