Chelsea vann mjög góðan sigur í ensku úrvalsdeildinni um helgina gegn Tottenham.
Tottenham fékk Chelsea í heimsókn en stjóri liðsins er einmitt Jose Mourinho sem stýrði eitt sinn því síðarnefnda.
Mourinho var súr eftir leikinn í gær og ásakaði Antonio Rudiger á meðal annars um að gera sér upp meiðsli.
Fyrr á tímabilinu gagnrýndi Mourinho leikmanninn Mason Mount er Chelsea tapaði gegn Manchester United.
Mount spilaði með Chelsea í 0-2 sigrinum í gær og ákvað faðir Mount að nýta sér tækifærið.
Tony Mount er faðir Mason Mount og birti hann færslu á Twitter þar sem hann segir Mourinho einfaldlega að halda sér saman.