Jose Mourinho, stjóri Tottenham, hefur staðfest að Tottenham ætli að áfrýja rauða spjaldi Heung-Min Son.
Son fékk beint rautt spjald í leik gegn Chelsea í gær fyrir að sparka létt í rifbein varnarmannsins Antonio Rudiger.
VAR var notað til að reka Son af velli en Paul Tierney sá um að dæma það og er Mourinho ekki sammála þeirri ákvörðun.
,,Varðandi Son þá tel ég að herra Tierney hafi dæmt þetta vitlaust,“ sagði Mourinho.
Hann bætti svo við: ,,Við erum að drepa bestu deild í heiminum.“