Tottenham 0-2 Chelsea
0-1 Willian(12′)
0-2 Willian(víti, 45′)
Stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið en spilað var á Tottenham Hotspur Stadium.
Jose Mourinho og félagar í Tottenham fengu Chelsea í heimsókn og mætti Portúgalinn sínu fyrrum liði.
Leikurinn var fínasta skemmtun en það voru gestirnir í bláu sem höfðu betur 0-2 á útivelli.
Brasilíumaðurinn Willian var í stuði gegn Tottenham í dag en hann skoraði bæði mörk Chelsea í leiknum.
Vængmaðurinn skoraði fyrst með góðu skoti innan teigs í fyrri hálfleik og það seinna kom úr vítaspyrnu.
Í seinni hálfleik fékk Heung-Min Son að líta beint rautt spjald fyrir að sparka í Antonio Rudiger, varnarmann Chelsea.
Chelsea er nú í fjórða sæti deildarinnar með 32 stig, sex stigum á undan Tottenham sem er í því sjöunda.