Manchester United tókst ekki að sækja þrjú stig í ensku úrvalsdeildinni í dag gegn Watford á útivelli.
Leikið var á Vicarage Road en það voru heimamenn í Watford sem unnu 2-0 sigur.
Watford er enn á botninum þrátt fyrir sigurinn í dag en United var alls ekki sannfærandi í tapinu.
Það gengur illa hjá United að sækja stig gegn minni liðunum en liðið stendur sig þó yfirleitt vel gegn þeim stærri.
Eins ótrúlegt og það hljómar þá hefur United aðeins unnið sjö prósent af sínum leikjum undir Ole Gunnar Solskjær þar sem liðið fær ekki vítaspyrnu.
Tölfræðin er frá því að Solskjær var ráðinn endanlegur stjóri United í byrjun árs.
Ole Gunnar Solskjaer premier league win percentage without penalties as permanent manager
7%
Hope this helps
— Mike (@MikeLUHGv3) 22 December 2019