Manchester United tapaði sínum leik í ensku úrvalsdeildinni þessa helgi en liðið spilaði við Watford.
United hafði verið á ágætis róli undanfarið og mætti á Vicarage Road í dag gegn botnliði Watford.
Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleik en snemma í þeim síðari skoraði Ismaila Sarr fyrsta mark Watford.
David de Gea gerði sig þá sekan um slæm mistök í marki United en hann missti boltann í raun í netið.
Jose Mourinho, fyrrum stjóri United, sá þessi mistök í beinni er hann var í viðtali við Sky Sports.
Þar var einnig Gary Neville að horfa á leikinn í sjónvarpinu og var steinhissa eins og má sjá hér.
Jose Mourinho and Gary Neville reacting to Watford’s opener 😳 pic.twitter.com/ERjXQrJ7Er
— The Man Utd Way (@TheManUtdWay) 22 December 2019