fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
433Sport

Sjáðu myndbandið: Beckham og Björgólfur Thor skemmtu sér saman um helgina

433
Sunnudaginn 22. desember 2019 19:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vita það flestir Íslendingar að viðskiptamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson og knattspyrnuhetjan David Beckham eru góðir vinir.

Beckham er einn frægasti knattspyrnumaður sögunnar á meðan Björgólfur er einn ríkast maður í heimi. Þeir kynntust í gegnum krakkana sína sem ganga í sama skóla í London.

Þeir félagar hafa kokkað ýmislegt saman í gegnum tíðina og er Beckham reglulegur gestur á Íslandi þar sem hann fer á meðal annars að veiða ásamt Björgólfi.

Beckham birti ansi skemmtilegt myndband í gær þar sem má sjá partýstand á þeim félögum og leikstjóranum Guy Ritchie.

Ritchie er einnig heimsfrægur en hann hefur leikstýrt myndum á borð við Snatch og Lock, Stock and Two Smoking Barrels.

Það var mikið fjör hjá þeim félögum en í myndbandinu má sjá hauslausan Ritchie skemmta sér og er Björgólfur við hans hlið.

Beckham birti myndbandið á Instagramið sitt en hann hélt smá teiti fyrir vini og vinkonur um helgina.

Myndbandið umtalaða má sjá hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Danmörk verði lendingin fyrir Vesturbæinginn þrælefnilega

Danmörk verði lendingin fyrir Vesturbæinginn þrælefnilega
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu ótrúleg tilþrif leikmanns Liverpool með enska landsliðinu

Sjáðu ótrúleg tilþrif leikmanns Liverpool með enska landsliðinu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Niðurstaða komin í harðar deilur nágranna – Sættust ekki á hvað gera ætti við trén

Niðurstaða komin í harðar deilur nágranna – Sættust ekki á hvað gera ætti við trén
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal sækir enn einn Chelsea-manninn

Arsenal sækir enn einn Chelsea-manninn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Var sleginn eftir brottrekstur úr Fossvoginum í gær – „Það er kannski ekki mitt að segja“

Var sleginn eftir brottrekstur úr Fossvoginum í gær – „Það er kannski ekki mitt að segja“