Úrúgvæska Diego Forlan hefur samþykkt að taka við þjálfarastarfi hjá Penarol í heimalandinu.
Forlan var í gær staðfestur sem nýr stjóri liðsins sem leikur í efstu deild í Úrúgvæ.
Penarol vann meistaratitilinn árið 2018 en Forlan lék í akademíu félagsins frá 1990 til 1991.
Hann átti síðar glæstan feril í Evrópu og lék með liðum á borð við Manchester United, Atletico Madrid og Inter Milan.
Forlan er 40 ára gamall en hann lagði skóna á hilluna fyrir ári síðan eftir stutt stopp í Hong Kong.