Hasan Salihamidzic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern Munchen, býst ekki við að félagið kaupi Leroy Sane í janúar.
Sane er á mála hjá Manchester City en hann var hársbreidd frá því að ganga í raðir Bayern í sumar.
Vængmaðurinn meiddist svo illa á hné og hefur ekkert komið við sögu hjá City undanfarna mánuði.
,,Það er ekki rétt að tala um leikmenn hjá öðrum liðum,“ sagði Salihamidzic við Sky Sports.
,,Við munum skilja hurðina eftir opna á félagaskiptamarkaðnum ég býst ekki við að mikið muni gerast.“