Nú er óttast að Alex Oxlade-Chamberlain verði lengi frá eftir að hafa meiðst í kvöld.
Oxlade-Chamberlain spilaði með Liverpool gegn Flamengo en um er að ræða viðureign í HM félagsliða.
Úrslitaleikurinn sjálfur er enn í gangi en staðan er markalaus þegar þetta er skrifað.
Oxlade-Chamberlain fór af velli eftir 75. mínútur og er óttast að hann verði frá í dágóðan tíma vegna ökklameiðsla.
Miðjumaðurinn virkaði sárþjáður á vellinum en tókst þó að haltra af velli áður en Adam Lallana kom inná.
Þetta má sjá hér.