Fiorentina á Ítalíu er búið að reka stjóra sinn Vincenzo Montella en þetta var staðfest í dag.
Montella og félagar hafa verið í hræðilegu formi á tímabilinu og situr liðið í 15. sæti deildarinnar.
Eftir 4-1 tap gegn Roma á föstudaginn þá ákvað stjórtn félagsins að leysa Montella af störfum.
Montella tók aðeins við Fiorentina fyrr á þessu ári en hefur ekki þótt sinna starfinu vel.
Hann stýrði Fiorentina einnig frá 2012 til 2015 og fór síðar til Sampdoria, AC Milan og Sevilla.