Liverpool 1-0 Flamengo
1-0 Roberto Firmino(99′)
Liverpool er heimsmeistari félagsliða eftir leik við Flamengo í úrslitum – leikið var í Katar.
Leikurinn var engin frábær skemmtun en það var lengi markalaust og fengu bæði lið ágætis færi.
Í uppbótartíma var útlit fyrir að Liverpool myndi tryggja sigur er dómari leiksins benti á vítapunktinn.
VAR var hins vegar notað til þess að skoða atvikið nánar og á endanum var dómurinn tekinn til baka.
Liðin þurftu því að fara í framlengingu og þar var eitt mark skorað. Roberto Firmino gerði það fyrir Liverpool.
Mark Firmino kom á 99. mínútu leiksins og reyndist nóg til að tryggja Liverpool sigur og þar með fyrsta titil liðsins í HM félagsliða.