Það verður ekkert partý hjá Liverpool ef liðið vinnur Flamengo um helgina í úrslitum HM félagsliða.
Þessi tvö lið spila í úrslitum keppninnar og var leik Liverpool í ensku úrvalsdeildinni frestað.
Það verður fagnað mikið í Brasilíu ef Flamengo vinnur en það sama má ekki segja um Liverpool að sögn Klopp.
,,Þegar snýr aftur heim ef þeir vinna þá munu þeir halda alvöru partý,“ sagði Klopp.
,,Ef við vinnum þá spilum við gegn Leicester. Hverjum er ekki sama? Þannig er þetta.“
,,Við getum ekki gert keppnina stærri fyrir okkur en hún er mikilvæg því þetta er eini leikurinn sem við spilum.“
,,Stuðningsmenn Liverpool vilja sjá okkur vinna en öðrum er í raun slétt sama.“