Besti varnarmaður í heimi, Virgil Van Dijk hefur jafnað sig af veikindum og getur spilað gegn Flamengo í úrslitaleik, HM félagsliða.
Van Dijk var veikur á miðvikudag þgear Liverpool vann Monterrey í undanúrslitum.
Jordan Henderson, fyrirliði liðsins varð að spila í miðverði en Dejan Lovren og Joel Matip eru báðir frá vegna meiðsla.
Van Dijk var mættur til æfinga í dag og er því leikfær um helgina þegar Klopp og félagar geta unnið bikar.
Van Dijk kom til Liverpool fyrir tæpum tveimur árum og hefur gjörbreytt leik liðsins.