Hollenskir miðlar segja frá því að Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona hafi ekki viljað kaupa Frenkie de Jong frá Ajax. Félagið hlustaði ekki og keypti hann.
De Jong kom til Barcelona í sumar en bæði Manchester City og PSG höfðu áhuga. De Jong vildi spila fyrir hið sögufræga félag.
Bæði Tomas Tuchel og Pep Guardiola buðu De Jong að heimsækja sig, það gerði Valverde ekki. Hann vildi ekki kaupa hann en félagið hlustaði ekki.
De Jong hefur verið að finna taktinn með Börsungum og fengið mikið hrós síðustu vikur, Valverde hefur spilað honum þrátt fyrir að hafa ekki viljað fá hann.
De Jong er hollenskur landsliðsmaður sem varð að stjörnu hjá Ajax á síðustu leiktíð þegar liðið, fór í undanúrslit Meistaradeildarinnar.