Yaya Toure, goðsögn Manchester City, er ósáttur því hann telur að Sadio Mane hafi átt Ballon d’Or skilið.
Lionel Messi vann Ballon d’Or verðlaunin í desember frekar en Mane sem vann Meistaradeildina með Liverpool í sumar.
,,Ef ég á að vera hreinskilinn þá átti hann skilið að vinna Ballon d’Or. Í Afríku þá finnum við ekki betri leikmann,“ sagði Toure.
,,Sáuði kosninguna, sáuði hvað hann gerði á síðasta ári, hvað hann skoraði mörg mörk, hvað hann afrekaði með Liverpool?“
,,Það er skömm af því þegar lið vinnur Meistaradeildina og sigurvegarinn kemur ekki þaðan.“