Kleberson, fyrrum miðjumaður Manchester United hefur ráðlagt félaginu að setja alla sína fjármuni í að fá Jadon Sanch og Saul Niguez.
Báðir eru sagðir til sölu, Dortmund vill um 100 milljónir punda fyrir Sancho og United hefur áhuga. Ef Paul Pogba fer frá Manchester United gæti Saul fyllt hans skarð.
Atletico Madrid þarf að selja leikmenn á næstunni til að fá inn fjármagn, talað er um að Saul sé til sölu fyrir 85 milljónir punda.
,,Það er mikið að greiða 100 milljónir punda en Sancho myndi strax hafa áhrif á leik liðsins,“ sagði Kleberson.
,,Saul er frábær, 25 ára gamall og á réttum aldri fyrir United. Hann hefur spilað fyrir stórt lið og færi í stærri lið.“