Mario Mandzukic, leikmaður Juventus, er við það að yfirgefa félagið samkvæmt fregnum dagsins.
Mandzukic hefur verið hjá Juventus frá árinu 2015 en á ekki lengur fast sæti í liði Maurizio Sarri.
Mandzukic er að ganga í raðir liðs í Katar en það er ónefnd eins og staðan er.
Króatinn var nálægt því að fara til Katar í september og var svo einnig orðaður við Manchester United.
Mandzukic hefur skorað 44 mörk í 164 leikjum fyrir Juventus en hann vill sjálfur komast burt.