Trent Alexander-Arnold, bakvörður Liverpool, segir að liðið sé alls ekki að spila eins vel og hægt er þrátt fyrir öruggt forskot á toppnum.
Liverpool er enn taplaust í deildinni á tímabilinu en þrátt fyrir það eiga þeir mun meira inni segir enski landsliðsmaðurinn.
,,Við erum langt frá því að vera 100 prósent. Ég er ekki viss um að við höfum spilað leik þar sem við erum ánægðir með frammistöðuna,“ sagði bakvörðurinn.
,,Leikurinn við Monterrey í vikunni var erfiður og þeir voru mun fleiri en það. Það er ekkert auðvelt í þessu.“
,,Þú færð engin verðlaun fyrir að spila fallegan fótbolta, er það?“